Leiðbeiningar
Stutt kynning á kerfinu
BYGG-kerfið er fyrir framkvæmdaraðila, hönnuði, hönnunarstjóra, byggingarstjóra, iðnmeistara og verktaka, til að vinna með og útfæra þá þætti sem þeir þurfa við byggingarframkvæmdir. Kerfið leiðir notandann frá hugmynd til fullbúinnar byggingar, skref fyrir skref.Notandinn flettir upp á leiðbeiningum í kerfinu um þau atriði sem hann þarf að hafa í huga, nær í öll gögn, gæðakerfi og eyðublöð sem hann þarf að nota og geymir í kerfinu þau gögn sem verða til við framkvæmdina og ástæða er til að geyma. Hvenær sem er og hvar sem notandi er staddur, getur hann flett upp í verkinu og unnið í því.
Með BYGG-kerfinu er tryggt að unnið sé með rétt gögn og að allir vinni með sömu gögnin.Einnig býðst notendum að fá staðallinn ÍST 30 á rafrænu sniði, fyrir eina vinnustöð, án endurgjalds. Kerfið hefur tengingu við Byggingarlykil Hannarrs við gerð kostnaðaráætlana. Þú ert staddur/stödd í notendalýsingu kerfisins og getur skoðað stutta lýsingu kerfinu á myndbandi, með því að velja merkið hér til hægri:
Boðið er upp á fría reynsluáskrift að BYGG-kerfinu sem gildir í 30 daga.
Verkkaupinn notar kerfið til að halda utan um byggingu þá sem hann stendur að, færir þar inn allar upplýsingar um bygginguna, skráir grunnupplýsingar sem birtast síðan í öðrum gögnum yfir verkið, geymir þar teikningar, samninga, gögn yfir samskipti sín við hönnuði, hönnunarstjóra, byggingarstjóra og verktaka. Hann er með þessi gögn aðgengileg hvar sem hann er staddur til uppflettingar og notkunar. Og hann hefur þar aðgang að leiðbeiningum og eyðublöðum sem hann þarf að nota við framkvæmdina.
Dæmi um notkun BYGG-kerfisinsHönnunarstjórinn heldur utan um hönnuðina og þeirra hönnun í BYGG-kerfinu og önnur gögn á undirbúningsstigi framkvæmdarinnar. Ráðgjafinn vinnur sína undirbúningsvinnu að framkvæmdunum í BYGG-kerfinu, svo sem útboðs- og samningsgögn. Og byggingarstjórinn notar kerfið til að halda utan um alla þá þætti sem hann er ábyrgur fyrir, á meðan á framkvæmdunum stendur.
Verktakinn notar kerfið til að halda utan um verkið frá samningsgerð og þar til hans verki lýkur. Hann hefur þar aðgengileg öll samningsgögn, svo sem verksamninga og teikningar og vinnur þar sínar verkáætlananir, heldur sínar dagbækur og gerir sín verkuppgjör. Hann hefur gögn verksins aðgengileg hvar sem hann er staddur til uppflettingar og notkunar á meðan á verkinu stendur og hann hefur þar aðgang að leiðbeiningum, formum og eyðublöðum sem hann þarf að nota í sínu starfi.
Viðhaldskerfið
Viðhaldskerfið tekur við þegar byggingu er lokið og komið að rekstri og viðhaldi byggingarinnar. Nánari lýsing á því er hér´einnig undir:
Viðhald bygginga er ekki síður mikilvægt en nýbygging þess og er hér fjallað nánar um þann þátt í greinargerðinni:
Hverjir nota BYGG-kerfið og hvernig:
Hönnuður/Hönnunarstjóri – Byggingastjóri – Iðnmeistari – Verktaki
BYGG-kerfið: